Hannes Jón & Harpa
Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  19  Alls: 72172
Dagsetning
28. janúar 2012
21.01.2012 10:25:36 / hannesogharpa

EM,HM,EM,HM,ÓL,EM,HM,EM,HM,ÓL,EM........

 

    Jæja þá er riðlakeppninni á EM lokið og Íslendingar fara áfram í milliriðil á minnsta mögulega mun og án stiga. Liðið hefur verið gagnrýnt harðlega í öllum miðlum sérstaklega fyrir lélegan varnarleik og hörmulega markvörslu, þess ber þó að gæta að sóknarleikurinn hefur ekki verið sérlega klókur og mikið um tæknifeila, þannig að ég held að liðið sé að fá á sig mun fleiri sóknir en í undanförnum mótum. Svo maður taki nú aðeins upp hanskann fyrir vörnina og markmennina. En í staðinn fyrir að hrauna yfir frammistöðu liðisins langar mig að velta fyrir mér hvað veldur ?

                Persónulega held ég að strákarnir séu þreyttir, ekki endilega þreyttir líkamlega heldur meira þreyttir í hausnum. Allir leikmenn liðsins eru á miðju keppnistímabili með sínum liðum og eru flestir í stórum hlutverkum í bestu deildum heims. Þeirra tímabil hefst um miðjan júlí eftir sumarfrí sem stendur í c.a. 4 vikur. Flest liðin spila 10-15 leiki á undirbúningstímabili og hafa svo spilað 16-18 leiki í deild síðan í byrjun september, þá bætast við 3-4 bikarleikir og Meistaradeild eða Evrópukeppni hjá mörgum þeirra.

                Íslenska landsliðið hefur verið skipað sama kjarna í mjög langann tíma sem er að vissu leyti mikill kostur, en það þýðir líka stærstur hluti liðsins hefur fengið alltof lítið frí frá handbolta svo árum skiptir. Ef maður ber saman leikmenn í atvinnumannaliði í þýskalandi sem eru annars vegar í landsliði og hins vegar ekki, þá fær leikmaðurinn sem ekki er í landsliði alltaf reglulega frí til að hvíla hausinn og líkamann á handbolta, hugsa um eitthvað allt annað og jafnvel láta sér hlakka til að byrja aftur með ferskann haus og léttar fætur. Sá sem er í landsliði fær 2-3 daga frí í Janúar meðan hinn fær 12-14 daga, sá sem er í landsliði fær ekkert páskafrí meðan hinn fær yfirleitt 3-6 daga og sá sem er í landsliði fær yfirleitt 4 vikur í sumarfrí meðan hinn fær sex. Þeir leikmenn sem fara síðan á Ólympíuleika með landsliðinu fá svo nánast ekkert sumarfrí á fjögurra ára fresti.

                Það er daumur allra handknattleiksmanna að komast inní landsliðið og að klæðast landsliðstreyjunni fyllir menn stolti, auðmýkt og einhverjum aukakrafti sem fleytir þeim áfram en það þýðir þó ekki að menn hætti að verða mennskir og geti endalaust náð fram því besta með hnefann á lofti og fánann í hinni. Fyrir unga leikmenn sem eru að stíga sín fyrstu spor með landsliðinu er þetta ekkert tiltökumál, það eitt að vera valinn í æfingahóp hjá landsliðinu gefur mönnum svo mikinn kraft og gleði að sjálfsagt gætu þeir æft og spilað á hverjum degi ársins, en hversu lengi lifir sú glóð ? Ef maður hugsar um það hversu mikinn tíma leikmaður eins og Guðjón Valur hefur notað með landsliðinu er ekki annað hægt en að segja bara Respect !! Sérstaklega þegar maður spáir í því að hann á konu og tvo börn , aftur bara Respect og kanski líka ertu eitthvað bilaður ?? Megnið af leikmönnum liðsins hefur farið á einhver 8-14 stórmót í röð !

                En þá er augljóslega hægt að segja við þessu bulli mínu : gengur ekki það sama yfir hin landsliðin ? Er þetta eitthvað verra hjá okkur en öllum hinum ? Nei, kanski ekkert verra en bara jafn slæmt og við hugsanlega eitthvað verri í stakk búinn til að takast á við þetta.  Á þessu móti eins og svo oft áður erum við að spila á færri leikmönnum en flest hin liðin og það eykur vissulega álagið á okkar mönnum og hefur sitt að segja. Alltaf þegar við höfum náð góðum árangri er það af því að við eigum góða leikmenn og svo höfum við náð upp einhverri svona íslenskri geðveiki sem erfitt er að útskýra en er alveg sérstök. Þessari geðveiki höfum við ekki náð upp í þessu móti en ekki má gleyma að það gæti alveg gerst í milliriðlinum. Ég held samt að til að ná upp svona geðveiki og stemmingu þurfi menn að vera ferskari, mótiveraðri og hungraðri en liðið virðist vera. Það þarf enginn að efast um að stákarnir séu ekki að leggja sig 100 % fram, að þeim langi ekki og séu ekki sjálfsgagnrýnir. En ég held að fyrirkomulagið sé bara þannig að það hlýtur að koma að þeim punkti að svona lið verði bara loftlaus, neistinn hverfi og menn ekki sjálfum sér líkir. Við skulum ekki gleyma að Frakkland og Danmörk fara líka stigalaus inní milliriðlana þannig að við erum ekkert eina liðið sem á í erfiðleikum.             Eins held ég að sú staðreynd að umspil fyrir Ólympíuleika og Ólýmpíuleikar eru handan við hornið hafi mikið að segja og margir leikmenn á þessu móti, ekki bara íslenskir séu ómeðvitað komnir með hugann við það verkefni. Enda bara Ólympíuleikar á fjögurra ára fresti meðan HM og EM eru alltaf annaðhvert ár og enginn man stundinni lengur hvernig síðasta mót spilaðist og oft á tíðum man fólk ( jafnvel leikmenn) ekki hvort að Ísland var að koma af HM eða EM , eða er að fara á EM eða HM ??

                Ég allavegana á erfitt með að gagnrýna leikmenn liðsins þegar ég hugsa til þess hversu gott ég hafði af því að fara í 10 daga frí til Kanarí eftir síðasta leik í deildinni, þá gjörsamlega kominn með út um eyrun af handbolta, bæði andlega og líkamlega. Ég man líka þegar að fríið var nýbyrjað og ég lá á sundlaugabakkanum með fjölskyldunni og naut þess fyrir allann peninginn að mér varð hugsað til félaga minna héðan úr Hannover , þeirra Vignis og Ásgeirs og sagði við Hörpu : Shitt maður strákarnir eru að byrja að æfa með landsliðinu í dag ! og hún horfði á mig handboltasérfræðingurinn sjálfur og sagði : oj bara, þetta er náttúrlega bara bull ! Ég held að hamingjan hafi haft hárrétt fyrir sér þá !

 

Að lokum skal það haft í huga að strákarnir hafa oft sýnt að þegar bakið er komið upp við vegginn og og allt komið í steik, eru þeir bestir. Ég trúi ennþá að það geti eitthvað óútskýranlegt gerst og þetta mót verði lengi í minnum haft fyrir frábæra endurkomu eins og einhver lítill maður mundi orða það ! Ef ekki þá verðum við hvort sem er búinn að gleyma því í byrjun ferbrúar og farin að láta okkur hlakka til að horfa á og styðja strákana okkar á Ólympíuleikunum í London í sumar !






» 2 hafa sagt sína skoðun

17.01.2012 08:37:59 / hannesogharpa

Af skítapésa og pissuhaus

 


    Fórum með Jóhann Úlf í reglubundna læknisheimsókn í gær, þar sem hann var mældur, vigtaður, sprautaður og skoðaður. Kauði er rétt yfir meðlagi hvað lengd varðar en langt langt yfir meðalþyngd. Með rúmlega meðalstóran haus sem virðist virka áæglega, allavegana svaraði hann öllu áreiti frá lækninum eins og vera skyldi. Hann er styttri og þyngri en systir hans var í sömu skoðun og þó fannst manni hún nú vera stutt og ansi þéttholda. En hann er hraustur og virðist ætla að verða sterkur strákur. 
    Sólveig Birta hefur undanfarið verið hálf kærulaus með klósettferðir, og virðist stundum bara ekki nenna af hafa sig á dolluna. Þetta orsakar að ósjaldan eru komnir dropar í brækurnar þegar hún loksins hefur sig á lettið sem þýðir nýjar nærur og stundum buxur. Við höfum verið að reyna að hvetja hana til að fara fyrr á klósettið og spyrja hana reglulega hvort hún þurfi að pissa. Svo gerðum við það sem við höfum verið að hóta henni og settum á hana bleyju ! Sjaldan hef ég séð litlu músina mína jafn sára og þá , en fyrst hélt hún að ég væri að grínast og hló , en þegar hún sá í hvað stefndi varð hún gjörsamlega harmi slegin ! Pabbi nei nei , fyrigefðu elsku pabbi minn, þú mátt ekki gera þetta , ég lofa , þú verður að trúa mér , ég skal aldrei gera þetta aftur !!! osvfrv...  Svo grét hún krókódílatárum og reif svo bleyjuna af sér og þrumaði henni út í horn, móðguð og sár. En viti menn, hvað gerðist ?? Jú jú hún meig í sig einhverntímann í nótt, klæddi sig úr buxunum og lagði þær ofan á hausinn á pabba sínum ! Sem leið eins og hann væri inní þvagrás þegar hann vaknaði !!! 
    Em byrjaði í fyrradag og Ísland spilaði sinn fyrsta leik í gær. Strákarnir töpuðu fyrir Króötum í leik sem þeir geta allir gengið stoltir frá, fengu því miður ekkert út úr leiknum en spiluðu betur en flestir áttu von á, og voru stutt frá því að landa sigri. Maður horfir nánast yfir sig á handbolta þessa dagana, en þjóðverjarnir eru duglegir að sýna leiki í sjónvarpinu, Hörpu til mikillar gleði ! 
    Gunnar Smári, Ómar, Hr. Halldór og Ingi Jarl hafa boðað komu sína til Hannover í kringum afmælið mitt, það verður hressandi en þeir ná að sjá heimaleik hjá okkur á föstudegi og svo verður helgin sjálfsagt tekin í eitthvað einstaklega menningarlegt og hægt að búa sig undir akademíska uppbyggingar helgi með áherlsu á þýska sögu, myndlist og samfélagsgerð. 
    Hafi einhver áhuga á að lána eða leigja eitt stykki eiginkonu og tvö börn í eina helgi, þá endilega bara hafa samband !
    Annars er þetta óttalegt kropp, æfingar byrjaðar á fullu gasi og enn bólar ekkert á vetrarveðri, er farinn að trúa því að við sleppum bara við vetur þetta árið !

Hakk og spakk 

Hjón
    

» 5 hafa sagt sína skoðun

12.01.2012 10:53:03 / hannesogharpa

Myndir


Jóla og Kanarímyndir komnar í albúm Des 2011 og Jan 2012

bkv

Harpa

» 4 hafa sagt sína skoðun

11.01.2012 11:25:03 / hannesogharpa

30.000 fet !




 

                Við erum í flugvélinni á leiðinni frá Fuerta Ventura en þar höfum við eytt síðustu 10 dögum. Þetta er búið að vera frábært frí og kærkomið, það er alltaf ákveðið lotterý að fara í svona ferðir, maður veit ekkert hvernig hótelið er, hvernig veður maður fær eða hvernig maturinn er. En það er óhætt að segja að við höfum verið heppin og séum himinlifandi með þetta allt saman. Hótelið var virkilega gott og maturinn framúrskarandi, veðrið var frábært alla dagana nema einn en þá fór hitinn niður í 20 gráður og sólin sást varla. Það var reyndar bara vel þegið þar sem að við vorum öll að verða orðin eins og brenndir snúðar og höfðum gott af smá pásu frá sólinni. Annars er í raun ekki frá miklu að segja úr svona fríi, við eyddum dögunum að mestu við sundlaugina með bók í annari og glas í hinni, Sólveig Birta var í essinu sínu og heldur því fram að nú kunni hún að synda. Hótelið sem við vorum á heitir Club Magic Live á Fuerta Ventura og mælum við hér með sterklega með því fyrir áhugasamt fjölskyldufólk.

Nú taka við mánuðir sem auðvellt er að flokka undir leiðinlegustu mánuði ársins, en sjálfsagt líka hægt að sjá þá einhverjum öðrum augum. Það vill nú þannig til að við fáum sumarið töluvert fyrr en gengur og gerist á Íslandi og fljótlega hægt að fara láta sér hlakka til þess. Eins mun það skýrast vonandi strax núna í Janúar hvar við munum búa á næsta ári. Samningurinn minn við Hannover-Burgdorf rennur út í júní á þessu ári og því ekkert í hendi með það hvar við endum. Okkur langar að vera áfram hérna enda átt hér fjögur góð ár, það kitlar samt að prófa eitthvað nýtt og fluttningar til Íslands eru helst ekki á dagskrá alveg strax. Svo snýst þetta ekki bara um hvað okkur langar, heldur einnig og kanski fyrst og fremst um hvað stendur okkur til boða. Þessi mál eru öll og hafa verið í vinnslu og verða sett á fullt núna í Janúar.

Svo verður gaman að fylgjast með landsliðinu á EM núna í Janúar, þar sem ég er sannfærður um að hinn ungi og efnilegi Ásgeir Örn Hallgrímsson muni blómstra. Ég spái því að það muni koma í ljós að íslenska landsliðið geti spilað án Ólafs Stefánssonar og að stubburinn sé kominn á endastöð með liðið.

Það verður allavegana skemmtilegt krydd í tilveruna að fylgjast með mótinu og vonandi komast strákarnir bara sem lengst !

Jóhann Úlfur er ferskur og fitnar og fitnar og fitnar. Hann er vær og þetta magavesen sem var eitthvað að angra hann í upphafi  virðist blessunarlega alveg úr sögunni. Hann eyðir c.a. 18 stundum á sólarhring á brjóstinu hjá mömmu sinni og brosir hinar sex. Ég var að vona að kauði mundi nú líkjast mér eitthvað aðeins meira en Sólveig Birta og þegar ég sá eyrun mín varð ég mjög bjartsýnn á það. En hann virðist einungis hafa fengið eyrun frá mér og er að verða alveg eins og Sólveig,  sem er eins og flestir vita klónið af mömmu sinni. Það er lítið við því að gera og sossum ekki leiðum að líkjast, þau fá kanski bara eitthvað af óspaksstaða skapinu ( yfirveguninni, léttleikanum og værðinni) frá mér !!!

Við byðjum að heilsa hérna úr 30.000 fetum, einhversstaðar yfir  Suður – Frakklandi

Hannes, Harpa, Sólveig Birta og Jóhann Úlfur

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.01.2012 11:08:01 / hannesogharpa

Ójá




    Bara af því að ég hef aldrei áður og mun sennilega aldrei aftur varð ég bara að prófa að blogga af sundlaugarbakka í 30 stiga hita  ! Sollan tjúlluðu í lauginni Harpa að megatana og Jói sofandi .... Alveg mestháttar !!!

Förum aftur til Hannover á morgun ...

Hafið það gott á eyjunni bláu , sem mér skillst reyndar að sé hvít þessa dagana ..!!!

Hasta luego !

» 0 hafa sagt sína skoðun

31.12.2011 12:04:54 / hannesogharpa

Gleðilegt ár


Var búinn að skrifa ægilegan annál sem þurkaðist skyndilega út þegar ég ætlaði að pósta honum, hef þetta því stutt.

25 gráður, brakandi þurkur , sól, frábært Hótel, geðveikur matur, bíkiní, Pinacolada.
 
Árið = jóhann Úlfur, gott sumarfrí, laxveiði, hamingja, Solla að rífa kjaft, boltinn vonbrygði, skólinn hjá Hörpu gengið vel, mikið af góðum gestum , allir hraustir,allir ferskir en þó rólegir.

Vona að jólakortin séu komin til skila, til hamingju með snjóinn, sorry Guðný amma að ég gleymdi að hringja í gær, gott skaup, góða skemmtun á Nýjárs Valmas, Gleðilegt ár á alla frá okkur.

Paba Johnsson, Super mama, Sólmundur sætabrauð og Kokteilpulsi

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.12.2011 09:30:52 / hannesogharpa

Gleðileg jól



    Gleðileg jól elsku fjölskylda og vinir, vonandi eru þið öll búin að hafa það alveg glimrandi gott og allir Hemmahressir. Við höfum haft það betra en góðu hófi gegnir og allt jólahald hingað til gengið samkvæmt plani. 
    Pabbi og Co komu hingað á Þorláksmessukvöld og þá var Harpa búin að gera dýrindis fiskisúpu, sjálf erum við ekkert fyrir skötu og finnst eiginlega óviðeigandi að borða skemmdan mat á jólunum, en fiskisúpan er kanski bara skötulíki hjá okkur nema hvað hún bragðast frábærlega og lyktar ekki eins og óhrein þvagfæri.
    Á aðfangadag voru svo allir bara pödduslakir þar sem að allt var klappað og klárt fyrir herlegheitin, June sá alfarið um matseldina og fórst það afbragðsvel úr hendi. Við borðuðum önd og flæske-steik að dönskum sið en í kvöld verður Hamborgahryggur og annað íslenskt jólagums. Sólveig komst ótrúlega vel í gegnum daginn í gær, þó að pakkafjallið undir Jólatréinu kallaði fram reglulegar hjartsláttatruflanir, svitaköst og stress. Það var svo óborganlegt að fylgjast með henni tæta utan af öllu draslinu í gærkvöldi og óhætt að segja að hún hafi veitt okkur hinum dygga aðstoð við að opna okkar gjafir. Þegar ég fór með hana upp að sofa í gærkvöldi var hún svolíti eins og heróínfíkill á niðurtúr, mesti spenningurinn yfirstaðin og bumban stútfull af stöffi sem Solla á grænum kosti mælir ekkert sérstaklega með.
    Jóhann Úlfur lét sér fátt um finnast en kallgreyið er búinn að vera með hita og ælupest síðan á Þorláksmessu. Við fengum öll og sérstaklega börnin alveg fáránlega margar og fallegar gjafir og erum þákklát fyrir þær allar, jólin, fólkið okkar og kanski mest hvort annað.
    Á Þorláksmessu voru síðan 2 ár síðan við Harpa létum pússa okkur saman og ekki kannski mikið hægt að segja um það hér, nema að ég sé heppinn, hamingjusamur og eigi yndislegustu konu í heimi, og í rauninni allt það sem ég gæti óskað mér.
    Það eina sem skyggði á jólahaldið hérna hjá okkur var að á aðfangadagsmorgun bankaði póstmaðurinn uppá með pakka sem innihélt öll jólakortin sem við höfðum sent. Ég hafði víst farið framúr mér í að skreyta kortin og skreytingarnar innihéldu einhver efni sem ekki má senda úr landi. Maður verður því að setjast yfir kortin aftur fjarlægja rúsínuna úr pylsuendanum og senda þetta á stað aftur. Við fengum aftur á móti fullt af skemmtilegum og fallegum kortum frá skemmtilegu og fallegu fólki, það er nú eiginlega að verða hápunktur jólanna hjá mér að lesa í gegnum kortin eftir að pakkageðveikin er yfirstaðin, takk fyrir okkur !!
    Það sem framundan er hjá okkur er að halda áfram að jólast yfir okkur, borða meira af góðum mat og njóta þess að vera til, ég þarf að komast í gegnum 2 æfingar og einn leik á næstu 3 dögum og svo bara kanaríeyjar !!!
    Hafið það gott öllsömul og borðið brosandi !

Love & Kisses

Fjölskyldan í Hannover

» 2 hafa sagt sína skoðun

20.12.2011 12:52:34 / hannesogharpa

Söknuður ( ekki samt Gísla Guðmunds söknuður)




    Ísland heitir það, Eldland væri engu síður réttnefni, því að jarðeldar og jökulís hafa skapað það og mótað í þá mynd sem það nú hefur.
    Það rís úr útsænum í einmanna tign eins og stórbrotið tákn þeirrar orku, sem skapar og tortímir, sem vegur upp tindinn og jafnar fjöllin við jörð.
    Við svalt heiði norðursins rís hún, sögueyjan Ultima Thule. Þar hefur þjóð búið, örlítil þjóð, oft við þröngan kost. Þar hafa örlög hennar ráðist í sókn og vörn við volduga náttúru. Samt hefur hún verið þess umkomin að skapa þá list ljóðs og sögu, sem orpið hefur ljóma á öll Norðulönd. Enn er hún alráðin þess, að leggjast ekki undir höfuð það hlutverk, sem sagan sjálf hefur henni á herðar lagt, að sýna heiminum og sanna, að hvorki breiddarstig, höfðatala né herstyrkur ráði úrslitum um það hvort menningarlífi verður lifað eða ekki. Heldur miklu fremur þroski þegnanna, manndómur þeirra og meðvitund um sameiginlegan uppruna, örlög og framtíð. Í tæp áttatíu ár hefur þjóðin notið hins nýfengna sjálfstæðis síns, mörg en samt svo fá torveld ár og viðsjárverð. Þó elur hún enn óbifanlega trúa á landið, mátt sinn og megin, frið og farsæld þjóðanna, þrátt fyrir allt.
    Ísland liggur norðarlega í Atlantshafi, vestur frá Noregi, norðvestur af Bretlandseyjum og sunnan við heimsskautsbaug. Það er um 103.000 ferkílómetrar að flatarmáli og stærsta eyja í evrópu, næst eftir Stóra-Bretlandi. 
    Strendurnar eru vogskornar mjög að vestan, norðan og austan, Þar verða firðir margir og flóar, en milli fjöllóttir skagar og nes. Að sunnan eru aftur lágir sandar með sjó og hafnleysur. Helstu firðirnir eru Faxaflói, Breiðafjörður og Ísafjarðardjúp vestan á landinu en Húnaflói, Skagafjörður og Eyjaförður norðanlands. Vestmannaeyjar liggja úti fyrir surðurstöndinni, en Grímsey norðan við landið undir heimskautsbaug. Annars er fátt um eyjar fyrir landi, nema á fjörðum inni og skerjagarður enginn.
    Mestur hluti landsins er hálendi, hlaðið upp úr blágrýtis hraunum og öðru gosbergi. Láglendi allmikið liggur þó upp frá suðurströndinni, en annars eru undirlendi lítil nema fyrir fjarðarbotnum, einkumm hinum stærri, og í dölum, sem skerast þaðan upp í hálendið. Miðbik landsins allt er samfelld háslétta, 400 - 800 metra há, með ávölum hæðum og grunnum daladrögum. Yfir hana rísa jöklarnir bungubreiðir og einstök fell, einkum eldfjöll og eldfjallarústir. Frá þessari hásléttu ganga sundurgrafnir fjallgarðar um 1000 metra háir fram milli dala og fjarða allt út á ystu annes, þar sem þeir enda í strandbjörgum eða þverhníptum hamramúlum. Hæsta fjall landsins er Öræfajökull, 2119 metra yfir sæ. Hann er eldfjall með hjálm af sísnævi og falljökla hrynjandi í hlíðum. Þannig eru og flest hinna stærri fjalla.
    Ísland er mjög ungt land. Jarðeldar og jökulís hafa skapað það og mótað í þá mynd sem það hefur nú. Blágrýti er undirstaða landsins og aðalbergtegund. Um mitt landið er það hulið yngri lögum, einkum móbergi, sem er samryskja sundurlausra gosefna. En austanlands og vestan nær blágrýtið upp að yfirborði, og eru stór svæði einvörðungu úr því gerð. Mjög eru þau ólík móbergshéruðunum að landslagi og svip.
    Ísland stendur á neðansjávarhrygg, sem nær frá Skotlandi norðvestur yfir Atlandshaf. Talið er, að hann sé leifar horfins lands, sem áður tengdi saman Evrópu og Ameríku og hlóðst upp við gífurlegt blágrýtisgos i þann mund er Alpafjöllin urðu til. Síðan hættu gosin og landið seig í sæ nema nokkrar eyjar, sem enn standa upp úr, og eru blágrýtishéruðin á Íslandi þeirra mest. Af steingerfingum sem fundist hafa í blágrýtinu, má marka það , að í fyrstu hafi loftslag verið viðlíka hlýtt og nú er í sunnanverðu Frakklandi og gróðurinn eftir því. Síðan kólnaði hægt og hægt, uns ísaldarjökullinn hvelfdist yfir landið og þrýsti því niður, svo að sær gekk yfir láglendi. Jafnframt slokknaði lífið út að mestu. En undir jöklunum hófust eldgos að nýju, sem hlóðu upp móbergslögin og steyptu saman í eitt blágrítisbrot hins horfna lands. Svo hlýnaði aftur og jökullinn hopaði aftur uppá hálendið. Landið hóf sig hægt úr sævi og stóð eftir ungt og ósnortið uns það varð numið nýjum gróðri.
    Og enn stendur hér barátta elds og ísa. Þetta land er vettvangur hinna andstæðu afla, sem jörðina skapa. Hvergi í veröldinni er viðureign þeirra jafn augljós og strórbrotin eins og á Íslandi. 
    Á íslandi búa Íslendingar og hafa gert síðastliðin 1100 ár eða svo, þar hafa þeir barist í gegnum aldirnar við svokallað skítaveður, eymd og volæði og síðast en ekki síst vonbrygði, og gera enn. Að skapsmunum eru þeir ólíkir öllum öðrum siðmenntuðum þjóðum, en telja sig sjálfir búa yfir yfirburða líkamlegum styrk og fegurð. Þeir segjast vera bókhneigðir og eru stoltastir af Íslendingasögunum gömlu og því hversu vel þeir hafa varðveitt tungumál sitt. Hver tími á sínar alýðuhetjur þar eins og annarstaðar sem verða ódauðlegir kyndilberar hins alíslenska þjóðarstollts um aldir alda , þar ber helst að nefna Snorra Sturluson, Gísla Súrsson, Grettir Sterka Ásmundsson, Jón Biskup Arason, Jón Sigurðsson, Hannes Hafstein, Davíð Oddson, Tobbu Marínós, Völu Grand, Julina Duranona, Björk, Vilhjálm Einarsson, Halldór Laxnes, Ásdísi Rán, Vigdísi Finnbogadóttur, Sigurð Einarsson, Þórberg Þórðarson, Egil Einarsson, Íþróttaálfinn, Keikó, Ástþór Magnússon og svo mætti lengi áfram telja.

Já það eru að koma jól, og maður saknar þess að komast ekki heim ! Mikið ósköp væri það ljúft.

kv Harpa

» 4 hafa sagt sína skoðun

15.12.2011 11:17:57 / hannesogharpa

Myndir

Fleir myndir í des 2011

bkv.

» 3 hafa sagt sína skoðun

13.12.2011 11:17:38 / hannesogharpa

11 dagar til jóla, 16 í Kanarí !

    

    Við fórum til Einars og Elfu á sunnudaginn, hugguðum okkur með þeim allan daginn, átum á okkur gat hjá frú Elfu og horfðum á íslenskt sjónvarp hjá Tækni Einari. Sólveig Birta og Viktor Bjarki eru alveg ótrúlega góð saman og ljúft að horfa og heyra barnið sitt leika sér á hinu ástkæra ilhýra. 
    Jóhann Úlfur dafnar virkilega vel og í hreinskilni sagt þá er hann orðinn alveg spikfeitur, hlutföllin minna ansi mikið á svona litla kokteilpulsu. En þannig á það líka að vera, hann er hraustur og líður vel, búinn að fara tvisvar í sprautu við einhverjum klassískum pestum, örugglega svartadauða og holdsveiki, þannig að ekki þurfum við að hafa áhyggjur af þeim vágestum. Hann sefur vært allar nætur undir hendinni á mömmu sinni og er ekki með leiðindi að neinu ráði. Sólveig Birta er alveg rosalega góð við hann, sækir fyrir hann snuðið, breiðir yfir hann teppi og vill mikið fá að halda á honum, það er ekki laust við að þessi elska sé talsvert konuleg þegar hún er að stumra yfir honum. Jólasveinarnir eru farnir að týnast til byggða hér í Þýskalandi eins og á Íslandi, þannig að nú byrjar hver dagur á því að opna pakka úr pakka-jóla-dagatalinu og tékka hvað kom í skóinn frá jólasveininum.
    Pabbi, June og Zhara tilkynntu okkur í vikunni að þau ætli að koma og vera hjá okkur yfir jólin, eins og undanfarin tvö ár, það gleður okkur að sjálfsögðu gríðarlega mikið og á aðfangadag verður því danskur matur hér á borðum, Steikt önd og flæske-steik, svolítið þriðjudags kanski fyrir íslendinga en alveg skuggalega gott.
    Hamingjan er að fara í próf á morgun sem hún tekur hjá ræðismanni Íslands í Hamborg, kúrsinn heitir kynjafræði og inniheldur trúlega minnst spennandi námsefni sem gefið hefur verið út hin síðari ár. En henni hefur gengið vel í þessu, fengið frábærar einkunnir fyrir verkefnin og er því lítið stressuð fyrir morgundeginum, hún er til að mynda í H&M núna, 23 klukkustundum fyrir próf !
    Við spiluðum á föstudaginn á heimavelli gegn Hildesheim sem er botnlið deildarinnar. Við unnum leikinn sannfærandi en það sem gerir leikinn minnistæðan er að hann fór fram í risastórri höll að viðstöddum 9.700 áhorfendum. Á morgun spilum við í 16 liða úrslitum bikarkeppninnar á móti liði sem er í 2.deild, leikurinn er spilaður á þeirra heimavelli sem er lengst suður í rassgati og förum við með lest og komum aftur um hádegi hinn daginn.
    Það er margt mjög skrítið í veröldinni, en sumt er vægast sagt skrítnara en annað, t.d. : Pabbi minn er búinn að vakan kl : 04:50 alla virka daga síðastliðin 12 ár, Jógvan heldur áfram að chilla með Friðriki Ómari en kemur samt ekki út úr skápnum, Ég þekki Svía sem verður leiðinlegri og leiðinlegri og leiðinlegri með hverjum deginum, Svartir menn fá ekki hár á lappirnar, þýskt sjónvarpsefni og skeggvöxtur Indíána. já , þetta er stórskrítið !
    Um langa hríð kvittaði hefðarfrúin, íþróttafrömuðurinn og ofurmamman Brynja Steinsein reglulega fyrir sig hérna á síðuna, það yljaði okkur fjölskyldunni um hjartarætur og það voru hugljúfar stundir þegar við vöknuðum að fara öll saman og setjast fyrir framan tölvuna og gá hvort Brynja væri búin að kommenta. Börnin satt best að segja lifðu fyrir þetta og við foreldrarnir höfðum ákaflega gaman af. Nú hafa heldur betur skipast veður í lofti og vonbrigða morgnarnir orðnir æði margir. Tárin hrynja af hvörmum Sólveigar litlu og Harpa á bágt með sig þegar í ljós kemur dag eftir dag að enn hefur ekkert heyrst frá Brynju. Sjáflur reyni ég að veikum mætti að halda andlitinu og reyni að útskýra fyrir börnunum og konunni að sjáflsagt sé Brynja bara upptekin eða talvan eitthvað biluð hjá henni. En þetta er um leið kærkomið tækifæri til að kenna ungviðinum hvað trúin skiptir miklu máli, og áfram munum við trúa og vona, og halda áfram að hafa það okkar fyrsta verk á degi hverjum að setjast fyrir framan tölvuna og trúa að nú hafi Brynja sent okkur kveðju. Að lokum munu trúin og vonin sigra vonbrygðin og sorgina og Brynja mun kommenta !

Amen !

» 2 hafa sagt sína skoðun

11.12.2011 21:30:49 / hannesogharpa

Myndir

Myndir des 2011 bkv.

» 1 hafa sagt sína skoðun

06.12.2011 07:00:21 / hannesogharpa

23 dagar í Kanarí - 18 til Jóla !



    Síðustu dagar hafa verið bragðmiklir í fjölmiðlum á Íslandi ef svo má að orði komast, tvö mál hafa tröllriðið öllum netmiðlum og fréttir eins og að ríkisstjórn landsins sé komin með allar tær fram af bjargbrúninni hafa verið í algjöru aukahlutverki. Þetta eru að sjálfsögðu fréttirnar af skilnaðarmálum þeirra Grétars Rafns og Manúelu og ásakanir á Egil Einarsson og frú um meint kynferðisofbeldi gegn 18 ára stúlku. 
    Einhvernveginn er maður nú svo veikur að maður les það sem netmiðlarnir birta, jafnvel þó að maður viti fyrirfram að mann langi alls ekkert til þess að vita meira um tiltekin mál. En manni er velt upp úr þessu, eins og kótilettu upp úr raspi, dag eftir dag með stríðs-fyrirsögnum og einhvern veginn fer maður að fá skoðun á málunum, skoðun sem jafnvel breytist oft á dag eftir því hvaða grein maður las síðast. Oft skín í gegnum greinarnar að þær eru skrifaðar með hag einhverns fyrir brjósti og greinilegt er að ákveðnir miðlar taka jafnvel stöðu með öðrum aðilanum í deilumálum tveggja. 
    Þessi tvö mál eru á margan hátt ólík en eiga þann mikilvæga þátt sameiginlegan að koma manni ekkert við, og að maður getur með engu móti dregið ályktanir um það hver eða hverjir hafi rétt eða rangt fyrir sér, hver sé góði gæjinn og hver bastardinn. Skilnaðarmál hjóna sem eflaust á sér langan og sársaukafullan aðdraganda og ásakanir um kynferðis ofbeldi hins vegar, á eflaust heima í fréttum þegar að um svokallað frægt fólk er að ræða. En væri ekki bara nóg að segja frá þeim staðreyndum sem liggja fyrir og leyfa svo fólki að leysa úr málunum sjálft, það er svo klassískt að málsaðilar komi í forsíðuviðtal einhvers tímaritsins þegar rykið er sest og skýri frá sinni hlið málanna. Allt gleymt, allir sáttir nema vinstri grænir. Ég er allavegana komin með ógeð á Grétari, Manúelu og Gillz, vona bara að mál þeirra fái sanngjarnar meðferðir.

Hér lekur allt hægt og sígandi í jólagírinn, hamingjan búinn að skreyta kofann, mandarínur komnar í skál og 100 íslensk jólalög óma í ljúfum takti við hávær börn. Úti fyrir 10 gráðu hiti, súld og dumbungur, ekki alveg jólalegasta veðrið en persónulega tek ég það frekar en snjó og frost. Harpa er í prófi þann 14. og að því loknu verður farið í það að setja upp Jólatréið. Sólveig fékk svakalega flott pakkadagatal frá Afa og co í Danmörku, þannig að hér byrjar hver dagur á spenning yfir pakka og svekkelsi yfir því að mega ekki opna fleiri, sem er sjálfsagt ágætis skóli fyrir hana.

Það er mikið af leikjum í desember og þar af fjórir útileikir, athyglisverðast leikurinn er trúlega næsta föstudag en þá spilum við gegn nágrönnum okkar frá Hildesheim, þetta er okkar heimaleikur og verður spilaður í sýningarhöll hérna í Hannover sem tekur rúmlega 10.000 áhorfendur. Annars er maður bara í hreinskilni komin með langt upp fyrir haus af handbolta og tilhugsunin um að Kanaríeyjar eru handan við hornið gera manni auðveldara með að baða sig upp úr hitakremi tvisvar á dag og drulla sér á hundleiðinlega handboltaæfingu .

En hér eru allir mest bara léttir og kátir !

kv Hjón

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.11.2011 09:00:54 / hannesogharpa

Pönnukökur gera lífið yndislegra !

Það er sunnudagsmorgun og Pulsa sefur vært í mömmubóli á efri hæðinni og Hamingjan og Hr.Maur eru á Íslandi. Búin að vera róleg og ljúf vika hjá okkur mæðginunum fyrir utan það að Sólveig kom heim af leikskólanum á föstudaginn með bullandi hita, sem hún er reyndar að verða búin að hrista af sér. Það koma stundum og eiginlega frekar oft ansi undarlegar athugasemdir og pælingar upp úr henni dóttur minni, hérna er smá dæmi : Við sátum tvö í mestu makindum í sófanum þegar hún rýkur allt í einu á stað og ég heyri að hún hleypur upp. Eftir að ekkert heyrðist frá henni í nokkrar mínútur, kallaði ég á hana en fékk ekkert svar og rölti því á stað og fann hana á klósettinu. Ég sagði : varstu að pissa ? Hún : Nei , ég var að kúka, með rassinum mínum ! Ég : jájá á ég að skeina ? Hún : viltu prófa ? Ég : prófa hvað ? Að kúka með rassinum mínum ? Ég afþakkaði pent og ekki laust við að maður velti fyrir sér hvað sé að gerast inní þessu litla höfðu, ég get allavegana ekki með nokkkru móti séð fyrir mér hvað hún var spá, en örugglega hefur góður hugur fylgt máli. Fyrir ekki svo löngu síðan birtust flennistórar fyrirsagnir í öllum fjölmiðlum um það að Íslendingar væru orðnir næst feitasta þjóð í heimi á eftir Ameríkönum. Það er vissulega áhyggjuefni ef rétt er, en fyrst og femst þykir mér það athyglisvert í ljósi þess að litla Ísland á víst að vera í klóm hinnar verstu kreppu og fjölskylduhjálpin þarf að vísa fólki frá og hins vegar því að nánast allir Íslendingur sem ég þekki eru í einhverjum ægilegum heilsupælingum hvað varðar matarræði. Kolvetnakúrar, borða ekki unnar matvörur, borða speglt, eyrnamerktir nammidagar, borða ekki á kvöldin, drekka vatn eins úlfaldi og svo framvegis og framvegis og framvegis. Svo heyrði ég því einhverntímann fleygt fram að 10 % þjóðarinnar væru með áskriftarkort í einni og sömu líkamsræktarstöðinni ! Í íslenskum fjölmiðlum fær svo heilsugeirinn svokallaði sannarlega nægilegt pláss og meira að segja Morgunblaðið margblessaða heldur úti risastórum lið sem nefnist Smartland, og langi einhvern til þess að missa gjörsamlega sjónar af veruleikanum og því sem skiptir máli í lífinu í skiptum fyrir heilalausa hégóma froðu, mæli ég með reglulegri lesningu á þeim lið. Hinn íslenski Dr.Phil heitir Gilzinigger og leggur talsvert meiri áherslu á heilsusamlegt líferni heldur en orginalinn í Ameríku og á hverjum degi nánast les maður um fólk ( oftast kvenfólk) sem misst hefur kílóafjölda sem samsvarar til eins og einnar fullvaxinnar kindar. Hvernig má það þá vera að þessi 300.000 manna þjóð fitni svona svakalega ört og illa þegar stór hluti hennar þarf að fá gefins mat frá hinu opinbera, annar risastór hluti púlar í líkamsræktarstöðvum landsins og restin veltir hverri kaloríu fyrir sér ? Ekki veit ég það ,en ég held að vandamálið sé ekki jafn risastórt og sumir vilja meina. Við erum bara svo brjálæðislega upptekin af útliti okkar að viðmiðin verða út úr korti, og ég held að hjá fæstum hafi þetta eitthvað með heilsu að gera. Það er leikur hjá okkur í dag á heimavelli gegn nýliðum Huttenberg og svo spilum við á útivelli gegn Göppingen á miðvikudaginn. Harpa og Jóhann Úlfur koma aftur út annað kvöld og við Sólveig Birta ætlum að skottast til Berlínar að sækja þau á flugvöllinn. Bestu kveðjur HJJ & Monkey

» 2 hafa sagt sína skoðun

20.11.2011 08:29:33 / hannesogharpa

Svona svona . . . . .

Pabbi komdu niður, Pabbi það er kominn dagur, ekki sofa lengi, förum í sófann tökum sængina með ! Við þessi orð með óþreyjufullum tón vaknar maður á hverjum morgni og sama hversu mikið mann langar til að sofa aðeins lengur kemst maður aldrei upp með það. Það er einfaldlega ekki möguleiki í stöðunni hjá henni dóttir minni að það sé ennþá nótt, þegar farið er að birta úti. Það er alveg hætt að vera samhengi milli þess hvenær hún fer að sofa og hvenær hún vaknar, þegar myrkrið víkur fyrir morgunskímunni þá vaknar hún og veit að Svampur Sveinsson og félgar eru komnir á stjá inní sjónvarpinu. Svo vill hún fá morgunmatinn borinn til sín í sófann og svona í morgunsárið er nú það minnsta sem hægt er að gera fyrir hana, að mata hana. Stundum eins og núna rétt áðan þarf maður líka pissa þarna undir sænginni og þá er ekkert því til fyrirstöðu að láta pabba bara halda á sér inná klósett, taka niður um sig og bera sig svo aftur inní sófa. Þó maður fari oft í gegnum þessar athafnir vægast sagt illa svefndrukkinn og sjái kaffið sitt og morgunblaðið í hyllingum þá eru þettar ljúfar stundir og fastir punktar. Ég sjálfur kann ákaflega vel við fasta punkta og ætla mér að reyna að hafa þá sem flesta hjá börnunum mínum, þetta þurfa ekki að vera merkilegir hlutir eða athafnir, bara eitthvað sem hægt er að ganga útfrá sem vísu, er alltaf eins og allir vita hvað kemur næst. Við Sólveig höfum t.d. passað okkur á því núna í 2 mánuði að stíga ekki á sama hundaskítinn á bílastæðinu fyrir utan leikskólann, bæði á leiðinni í og úr leikskólanum. Ekki merkilegt en ég fæ ekki betur séð en að við höfum bæði alltaf jafn gaman af því að stökkva yfir skítinn, svo við fáum hann ekki á skóna því þá kemur skítafýla í pabbabíl. Það er reyndar að verða ansi lítið eftir af þessum tiltekna hundaskít og þegar rigningin verður búin að má hann algerlega út verðum við bara að finna eitthvað annað. Þeir sem alast uppí sveit búa við óumflýjanlega fasta punkta og hafa mikið gott af held ég. Störfin eru árstíðarbundin og allt heimilfólkið tekur þátt , kann til verka, tekst á við þau og leysir með meiri hlutdeild barnanna ár frá ári. Ég hygg að sú umgjörð sé allt að því fullkomin til barnauppeldis. Maður heyrir oft fólk segja : Svona var þetta alltaf heima hjá mér eða svona gerðum við þetta alltaf, og ég vona að grísirnir mínir taki eitthvað svona með sér út í lífið. Í dag er handbolta-íslendinga-jólaboð hjá fjölskyldunni Svavarsson, held að flestum þeim sem spila hérna í Þýskalandi hafi verið boðið en eitthvað fáir sjái sér reyndar fært um að mæta. Sumir vegna anna aðrir vegna vegalengda, en á boðstólnum verður m.a. íslenskt hangikjöt, pönnsur og annað góðgæti. Það verður ljúft og mikil spenna ríkir á þessu heimili, mest þó vegna þess að tilvonandi tengdasonur minn Viktor Bjarki Einarsson ( Hólmgeirsson) verður á svæðinu ! Í gær spiluðum við gegn Magdeburg á útivelli, þó réttara væri sjálfsagt að segja að þeir hafi spilað með okkur. Í stuttu máli þá var okkur slátrað mjög snyrtilega þar fyrir framan 5000 manns og óhætt að segja að við höfum litið illa út. Sáum ekki til sólar og áttum aldrei möguleika á að stríða þeim. Getum ekki tekið neitt gott með okkur úr þessu ógleymanlega ferðalagi nema kanski pitsuna sem við fengum eftir leik, hún var ágæt. Ekki laust við að maður öfundi konuna sína af því að vera að fara til Íslands á morgun, mundi gefa mikið fyrir að komast norður í Hrútafjörð núna, fara í fjárhúsin, fá ammoníaks-mökkinn í nefið, stútfylla mig af kótilettum í raspi hjá ömmu og hrjóta í takt við afa yfir ríkissjónvarpinu nokkur kvöld í röð ! Góðar stundir HJJ P.s. Hamingjan er búin að setja einhverjar myndir af maurunum inní möppu Nóvember 2011.

» 1 hafa sagt sína skoðun

12.11.2011 09:02:00 / hannesogharpa

46 dagar til jóla - 52 í Kanarí

Um síðustu helgi rúlluðum við okkur til Pabba & co í Danmörku, fórum á föstudeginum og vorum fram á sunnudag. Á leiðinni til þeirra tókum við ferjuna frá Puttgarden til Rödby en á sunnudeginum fórum við landleiðina. Áttum ljúfa helgi þar eins og alltaf, borðuðum mikið af góðum mat og hugguðum okkur með þeim eins og mest við máttum. Hamingjan tók swing í búðum á laugardeginum en það er ómissandi partur af Danmerkurferðum hjá henni taka Tælendingin í Bilka. Jóhann Úlfur fór í reglubundna læknisheimsókn í vikunni, hann braggast vel og er í XL bæði hvað varðar þyngd og lengd, þessi litla rækja virðist ætla að verða alveg sama fiskibollan og systir hans varð og maður eiginlega horfir á hann fitna þessa dagana. Það er víst helst til of mikið loft í maganum á honum og þess vegna er hann frekar órólegur þessar fáu mínútur sem hann vakir á sólarhring. Annars sefur hann allar nætur og flesta daga með það eitt að leiðarljósi að verða sterkari en systir sín og tæpir 2 metrar eins og pabbi sinn. Við fórum í matarboð til Hönnu og Ásgeirs í gærkvöldi ásamt fjölskyldunni Svavarsson og það virðist hafa farið ákaflega vel í Sólveigu Birtu, en hún er búin að eyða fyrstu tveim tímum dagsins í að tala um Hönnu og Berglindi og ekkert annað en Hönnu og Berglindi !!! Ég held stundum að hún haldi að þær þrjár séu jafn gamlar. ,, Sólveig viltu morgunmat : Hanna þarf líka að fá morgunmat ! Sólveig viltu koma að pissa ? : Berglind verður líka að pissa ! og svo framvegis .. Það kólnaði hérna í gær, hitastigið fór niður í 3 gráður, en hingað til hefur verið alveg lygilega gott og huggulegt veðurfar. Mín reynsla af þessu hérna er að þegar byrjað er að kólna þá hlýnar ekkert aftur fyrr en bara að vorið kemur með alla sína dýrð, kuldalega lóu og litlu lömbin verða skýrð ! Það er sossum ágætt fyrir veðurkvíðna Íslendinga að geta gengið að veðri vísu og þó að það kólni eru nú flestir vetrardagar fallegir hérna og sólin aldrei langt undan, þá er vindurinn ekki mikið að leggja leið sína inní neðra - saxland en spekingarnir segja að hann hafi flúið í seinni heimsstyröldinni og ekki lagt í það að koma aftur, sem er bara hið besta mál, sel þessa speki reyndar ekki dýrar en ég keypti hana. Í dag er leikur hjá okkur á heimavelli á móti Wetzlar, en þar spilar hinn íturvaxni, gleðimaður og eyjapeyji með meiru Kári Kristjánsson. Leikur sem ef til vill sker svolítið úr um það hvort við ætlum að vera að berjast með neðstu 4-5 liðina eða á dauða svæðinu um miðja deild. Við erum ennþá þannig að við getum unnið flest lið en jafnframt tapað fyrir þeim flestum og einhvernvegin koma engin úrslit hjá okkur manni á óvart. Við höfum verið að stóla mikið á skytturnar okkar og erum oft ansi graðir að þruma á markið, þá fara úrslit of margra leikja eftir því hvort þrumararnir eru að skjóta í stöngina inn eða stöngina út. Okkur vantar skýrara plan, meiri aga og þannig væntanlega meiri stöðugleika. Í gærkvöldi létust tveir dómarar úr deildinni í bílslysi á leiðinni í leik, þeir voru tvíburabræður og trúlega eitt af bestu dómarapörum heimsins, þeir voru 47 ára, fyrr í vikunni bárust svo sorglega fréttir úr Hafnafirði um fráfall ungs manns í blóma lífsins, svona ýtir við manni og ekki laust við að maður taki aðeins fastar utan konuna sína og maurana en ella. Harpa og Úlfurinn fara heim á mánudaginn eftir rúma viku, þann 21. Þau verða að vanda til húsa í Kringlunni og Harpa verður með gamla númerið sitt, þau stoppa í viku og á meðan ætlum við Sólveig Birta að borða mikið af öðruvísi mat og ganga um í skrítnum fötum sem passa engan vegin saman ! það verður alveg rosalega gaman, segir daman, skrítin í framan. Síðar Hjón, Lucky, Pulsa og Hr.Maur

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9